Unglingalandsmót UMFÍ 31.júlí- 2.ágúst 2020
Þá er það orðið ljóst að Unglingalandsmót UMFÍ mun fara fram þetta árið. En það verður farið eftir öllum tilmælum yfirvalda um sóttvarnir og gætt að ýtrustu vörnum.
Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið á Selfossi dagana 31. júlí – 2. ágúst í samstarfi Héraðssambandsins Skarphéðins og Sveitarfélagins Árborgar. Mótið hefur verið haldið frá árinu 1992 og hefur sannað gildi sitt sem glæsileg vímuefnalaus fjölskyldu- og íþróttahátíð þar sem saman kemur fjöldi barna og ungmenna með fjölskyldum sínum.
Allar nánari upplýsingar má finna inn á: https://www.ulm.is