Verndum þau, skráningarfrestur framlengdur

Mennta- og menningarmálaráðuneytið í samstarfi við Æskulýðsvettvanginn halda barnaverndarnámskeiðið Verndum þau, á Austurlandi annað kvöld.

Skráningarfrestur hefur verið framlengdur og nokkrar breytingar hafa orðið á því hvar námskeiðið verður haldið

Breiðdalsvík og Borgarfjörður bætast við áður auglýsta námskeiðsstaði en námskeiðið sem vera átti á Norðfirði fellur niður þar sem engar skráningar bárust þaðan.

Námskeiðið fer fram í Þekkingarneti Austurlands á Egilsstöðum og verður sent þaðan á eftirfarandi staði í gegnum fjarfundabúnað:

Vopnafjörður: Kaupvangi Hafnarbyggð 4
Reyðarfirði: Fróðleiksmolanum Búðareyri 1
Breiðdalsvík: Grunnskólinn
Borgarfjörður eystri: Grunnskólinn

Hægt er að bæta við skráningum á ofangreinda staði.

Skráningar á námskeiðið skulu berast í tölvupósti á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða í síma 4711353.  Taka þarf fram nafn og netfang þátttakanda og hvar hann mun sækja námskeiðið. Námskeið er þátttakendum að kostnaðarlausu.


Námskeiðið hefst kl 19 og er ráðgert að því ljúki milli 21.30-22:00.

Ólöf Ásta Farestveit, uppeldis- og afbrotafræðingur, forstöðumaður Barnahúss og einn af höfundum bókarinnar Verndum þau (sem verður afhent á námskeiðinu) mun kenna námskeiðið. Í lok þess munu fulltrúar sem sinna barnavernd hjá Félagsþjónustu Fljótsdalshéraðs og Félagsþjónustu Fjarðabyggðar koma með stutta kynningu á barnaverndarstarfi í sveitarfélögunum.

Tilgangurinn með námskeiðshaldinu er að gefa þeim sem sem starfa með börnum og unglingum upplýsingar um barnavernd, barnaverndarlög og skildu sína þar að lútandi. Námskeiðið er ætlað kennurum, leikskólakennurum og öðru starfsfólki leik- og grunnskóla, þjálfurum og leiðbeinendum í hverskonar frístundastarfi og öllum þeim sem áhuga hafa að bæta þekkingu sína á þessu sviði.

 

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ