Sprettur – opið fyrir umsóknir í vorúthlutum 2019
UÍA auglýsir eftir styrkumsóknum vegna haustúthlutunnar, úr Spretti Afrekssjóði UÍA og Alcoa, umsóknarfrestur er til og með 17. maí.
Sjóðurinn hefur verið starfræktur frá árinu 2009 og veitt fjölda mörgum íþróttamönnum, þjálfurum og félögum á Austurlandi styrki til góðra verka. Alcoa sem leggur til sjóðsfé í Sprett en UÍA sér um umsýslu hans. Rúmar þrjár milljónir eru til úthlutunar úr sjóðnum í ár.
Styrkir sjóðsins skiptast í iðkendastyrki, félagastyrki og þjálfarastyrki. Þá er einnig úthlutað afreksstyrkjum en eingöngu við haustúthlutun.
Við hvetjum íþróttafólk, þjálfara og íþróttafélög á Austurlandi að sækja um í sjóðinn.
Umsóknareyðublöð má nálgast hér.
Reglur sjóðsins má finna hér. Við hvetjum umsækjendur eindregið til að kynna sér reglur sjóðsins og vanda til verka við gerð umsóknar. Vönduð umsókn eykur líkur á styrkveitingu.