Myndir af Unglingalandsmóti MÓTORCROSS
Í myndasafninu hér á síðunni má nú sjá myndir af mótorcrossmóti ULM. Jón Kristinn Jónsson sérgreinastjóri og félagar hans í START höfðu í nógu að snúast við undirbúning keppninnar því byggja þurfti keppnishæfa mótorkrossbraut fyrir mótið.
Með hjálp góðara manna gekk það greiðlega og glæsileg braut leit dagsins ljós í Ylsgrúsum við Mýnes. Á ULM þeystu þar um tuttugu keppendum um og nutu sín vel í bratuinni.
Keppt var í fjórum flokkum; 12-15 ára stelpur og 12-15 ára strákar á á 85cc 2t og 150cc 4t hjólum, opnum kvennaflokki á 125cc 2t og 250cc 4t hjólum og unglingaflokki 14-18 ára á125cc 2t og 250cc 4t hjólum. Mótið gekk vel í alla staði. Starfsmenn mótsins nutu m.a. starfskrafta Spretts Sporlanga sem aðstoðaði við ræsingu keppninnar og fórst það vel úr hendi.
UÍA átt einn keppenda í opnum kvennaflokki og hafnaði hann í öðru sæti.
Heildarúrslit mótsins má sjá hér
Óskum við mótorcrossmönnum og -konum til hamingju með vel heppnað mót og flotta braut sem vonandi mun efla mótahald í mótorcrossi hér eystra enn frekar.