Sundæfingabúðir á Höfn
Það hefur löngum verið gott samstarf milli sunddeilda innan UÍA og sunddeildar Sindra á Höfn. Næstu helgi bjóða þeir síðarnefndu upp á æfingabúiðir í sundi á Hornafirði og eru þátttakendur af starfssvæði UÍA hjartanlega velkomnir.
Guðmunda Bára Emilsdóttir mun sjá um æfingar ásamt þjálfara Sindra. Auk æfinga verður brugðið á leik með ýmsum hætti.
Verðið er 6000 kr á mann og eru þar gisting, matur og þjáfun innifalin.
Nánari upplýsingar veita:
Þuríður 895 1973
Þóra 899 2697
Lovísa 895 0454