Myndir af Unglingalandsmóti KNATTSPYRNA
Í myndasafninu hér á síðunni má nú finna úrval skemmtilegra mynda úr knattspyrnukeppni ULM.
Spilað var á Fellavelli og mættu alls 80 lið til leiks, 49 strákalið og 31 stelpulið. Eins og myndirnar bera með sér var líf og fjör á vellinum og keppendur duglega hvattir árfam af áhorfendum.
Leikið var í sex manna liðum í öllum flokkum þ.e. 5.-2. flokks og stýrði Hilmar Gunnlaugsson sérgreinastjóri mótinu, sem gekk vel í alla staði.
Fjöldi liða af Austurlandi tók þátt og stóðu sig með prýði.
Heildarúrslit mótsins má sjá hér og myndir af verðlaunafhendingu má finna hér