Landsmót 50+ í Mosfellsbæ 2012
Stjórn UMFÍ tók í gær ákvörðun um næsta mótsstað fyrir Landsmót 50+ og mun það fara fram í Mosfellsbæ sumarið 2012. UÍA, í samstarfi við Fjarðabyggð, sótti um mótið og blandaði sér þar í baráttu fjögurra annarra héraðssambanda en USAH, UMSB, UMSE og UMSK sóttust auk okkar eftir mótinu.
Á heimasíðu UMFÍ segir:
,,Það var mat stjórnar að allir umsækjendur væru í stakk búnir til að taka að sér framkvæmd mótsins en þetta varð niðurstaðan að þessu sinni".
UÍA horfir því björtum augum fram á veginn og er þess fullviss að okkar tími, til að halda Landsmót 50+ muni koma. Við sendum því UMSK hamingjuóskir og fylkjum vonandi liði á landsmót 50+ í Mosfellsbæ næsta sumar.