Sprettur afrekssjóður - opið fyrir umsóknir
UÍA auglýsir eftir styrkumsóknum vegna vorúthlutunnar, úr Spretti Afrekssjóði UÍA og Alcoa, umsóknarfrestur er til og með 6. maí.
Sjóðurinn hefur verið starfræktur frá árinu 2009 og veitt fjölda mörgum íþróttamönnum, þjálfurum og félögum á Austurlandi styrki til góðra verka. Alcoa sem leggur til sjóðsfé í Sprett en UÍA sér um umsýslu hans. Árlega er veitt 2,3 milljónum króna úr sjóðnum en að auki hlýtur íþróttamaður UÍA styrk úr sjóðnum ár hvert.
Við hvetjum íþróttafólk, þjálfara og íþróttafélög á Austurlandi að sækja um í sjóðinn.
Umsóknareyðublöð má nálgast hér
Reglur sjóðsins má finna hér. Við hvetjum umsækendur eindregið til að kynna sér reglur sjóðsins og vanda til verka við gerð umsóknar. Vönduð umsókn eykur lýkur á styrkveitingu.