Góður árangur í grunnskólamóti og sveitaglímu

Sautján nemendur frá Grunnskóla Reyðarfjarðar tóku þátt í Grunnskólamóti Íslands sem fram fór á Hvolsvelli laugardaginn 19. mars og stóðu sig með miklum ágætum. Þeir urðu aðrir í stigakeppni skóla á eftir Hvolsskóla og eignuðust fjóra grunnskólameistara, Þórð Pál  Ólafsson, Birki Inga Óskarsson, Mörtu Lovísu Kjartansdóttur og Nikólínu Bóel Ólafsdóttur.

Að loknu grunnskólamóti fór fram bráðskemmtileg og fjörug sveitaglíma. Allar sveitir stóðu sig með mikilli prýði og ein sveitin, sveit 10 og 11 ára stráka, varð sveitaglímumeistari. Það var  lærdómsríkt og skemmtilegt að hitta og fá að takast á við glímukrakka hvaðanæva af landinu. Allir voru ánægðir þegar heim var komið eftir langt ferðalag þar sem lífsgleðin og vináttan var í fyrirrúmi.

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ