Ásmundur Hálfdán valinn glímumaður Reykjavíkurleikanna

Föstudagur, 29 Janúar 2016 09:38
Nú á dögunum tóku 7 iðkendur frá glímudeild Vals Reyðarfirði þátt í Reykjarvíkurleikunum og kepptu þar í glímu og backhold undir merkjum UÍA. Árangur Ásmundar Hálfdáns Ásmundssonar stóð hvað mest upp úr en hann vann alla sína flokka en þeir voru +90 kg og opin flokkur í báðum greinum, einig var hann valin glímumaður mótsins.

Önnur úrslit voru að Eva Dögg Jóhannsdóttir vann bæði -65 kg og opinn flokk í glímunni en hún tók ekki þátt í backhold. Hjörtur Elí Steindórsson vann -80 kg flokkinn í glímu og lenti í 3. sæti í opnum flokki og Kristín Embla Guðjónsdóttir náði 3. sæti í +65 kg flokki í glímunni. Aðrir keppendur UÍA stóðu sig með prýði, en sumir þeirra voru að keppa í fyrsta sinn í skoskri glímu, backhold.

Þess má til gamans geta að Ásmundur Hálfdán, Eva Dögg og Hjörtur Elí hafa öll verið valin í landslið Íslands sem keppir á Evrópumeistaramótinu í keltneskum fangbrögðum í apríl á þessu ári.

 

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ