Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands auglýsir eftir sumarstarfsmanni.
UÍA er héraðssamband og aðili að ÍSÍ og UMFÍ. Aðildarfélög UÍA eru öll íþrótta- og ungmennafélög á Austurlandi.
Starfið felst í skrifstofurekstri UÍA, umsjón með fjármálum sambandsins, viðburðarstjórnun og mótahaldi, samskiptum við aðildarfélög og opinbera aðila.
Starfsmaðurinn sem við erum að leita að þarf að vera góður í mannlegum samskiptum, skipulagður, jákvæður og sjálfstæður í vinnubrögðum. Kostur er að viðkomandi hafi þekkingu og áhuga á málefnum ungmennafélagshreyfingarinnar.
Æskilegt er að viðkomandi hafi þekkingu og reynslu af almennum skrifstofustörfum, bílpróf og þekkingu á sviði íþrótta eða reynslu af þjálfun eða öðrum störfum sem nýtast í starfi innan ungmennafélagshreyfingarinnar.
Viðkomandi þarf að leyfa að upplýsinga um hann sé aflað úr sakaskrá, sbr. 3.-4. mgr. 10. gr. laga nr.70/2007 og uppfylli þau skilyrði sem koma fram í 2. mgr. 10. gr. sömu laga.
Viðkomandi þarf geti hafið störf eigi síðar en 1. júní.
Sumarstarfsmaður starfar með framkvæmdastjóra og stjórn UÍA.
Umsóknir skulu berast fyrir 6. mars á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..
Nánari upplýsingar veitir skrifstofa UÍA, This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it., s: 4711353