Fríða Rún með fyrirlestur fyrir hlaupara
Hlaupadrottningin Fríða Rún Þórðardóttir hélt nýverið námskeið á Austurlandi fyrir áhugasama hlaupara á vegum Hlaupahéranna og UÍA.
Námskeiðið var tvískipt. Annars vegar var um að ræða fyrirlestur um næringu íþróttahóps en að honum loknum voru teknir nokkrir hringir á hlaupabrautinni á Vilhjálmsvelli.
Fríða Rún notaði einnig tækifærið til að heimsækja úrvalshóp UÍA i frjálsíþróttum.