Meistarflokkur Hattar í 1. deild
Meistaraflokkur Hattar í knattspyrnu tryggði sér, um helgina, sæti í 1. deild með sigri á liði Árborgar 1-3.
Leikurinn fór fram á Selfossi síðastliðinni sunnudag og mætti fjöldi Héraðsbúa á völlinn til að styðja sína menn.
Næsta laugardag fer fram á Vilhjálmsvelli síðasti leikurinn í deildinni og verður hann gegn Fjallabyggð, með sigri í honum getur Höttur landað deildarmeistaratitli.
Óskum við Hattarmönnum góðs gengis á laugardaginn og hvetjum alla til að mæta á völlinn.
Frétt af sigrinum síðasta sunnudag má finna hér á vef agl.is