Opnað fyrir umsóknir í Sprett Afrekssjóð UÍA og Alcoa
Haustúthlutun úr Spretti afrekssjóði UÍA og Alcoa fer fram um miðjan október. Tekið verður við umsóknum í sjóðinn til og með 7. október.
Úr sjóðnum er úthlutað fjórum gerðum styrkja; afreksstyrkir, iðkendastyrkir, þjálfarastyrkir og félagsstyrkir. Nánari upplýsingar um úthlutunarreglur og umsóknareyðublöð má finna hér á síðunni undir SPRETTUR Afrekssjóður. Rétt er að benda á að vegna tæknilegra örðugleika er ekki hægt að senda umsóknir beint í gegnum síðuna eins og verið hefur, heldur eru umsækendur beðnir um að nálgast þar umsóknareyðublað, fylla út og senda í tölvupósti á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða með gamla laginu á skrifstofu UÍA, Tjarnarási 6, 700 Egilsstöðum.
Framúrskarandi íþróttakonum á Austurlandi er sérstaklega bent á að sækja um afreksstyrki úr sjóðnum að þessu sinni en fresta þurfti úthlutun afreksstyrkja síðastliðið vor þar sem engar umsóknir bárust frá íþróttakonum.