BN og KAH í úrslitum Launaflsbikarsins
Boltafélag Norðfjarðar og Knattspyrnuakademía Hornafjarðar mætast í úrslitum Launaflsbikarsins í knattspyrnu. Leikurinn verður á Fellavelli sunnudaginn 21. ágúst klukkan 18:00.
Norðfirðingar tryggðu sér í gærkvöldi þátttökurétt í úrslitaleiknum þriðja árið í röð þegar þeir sigruðu Spyrnismenn á Norðfirði 2-0. Boltafélagið tapaði fyrir Spyrni árið 2009 og fyrir Hrafnkeli/Neista í vítaspyrnukeppni í fyrra.
Hornfirðingar eru nú með í fyrsta skipti en þeir hafa leikið heimaleiki sína á Djúpavogi. Þeir slógu út ríkjandi meistara 3-5 á Staðarborgarvelli í gærkvöldi.