Spretts Sporlangamótið í frjálsíþróttum
Frjálsíþróttaráð UÍA stendur þriðjudaginn 16. ágúst fyrir Spretts Sporlangamótinu í frjálsíþróttum fyrir tíu ára og yngri. Mótið fer fram á Vilhjálmsvelli og hefst klukkan 17:00.
Keppt verður í spretthlaupi, langstökki, boltakasti og 400 metra hlaupi. Hinn síkáti Sprettur Sporlangi mætir á svæðið og bregður á leik.
Þátttökugjald er 500 kr. á keppanda, óháð greinafjölda.
Nánari upplýsingar og skráningar eru hjá skrifstofu UÍA í síma 471-1353 eða á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..