SE Spark 2011
Laugardaginn 13. ágúst fagnar Samvirkjafélag Eiðaþinghár (SE) 85 ára afmæli sínu. Af því tilefni verður slegið upp knattspyrnumóti fyrir sjö manna lið á Eiðum.
Mæting liða í Eiðar er klukkan 10:30 en flautað verður til leiks á slaginu 11:00. Skráningarfrestur er til miðnættis föstudaginn 12. ágúst. Skráningargjöld eru 7.000 krónur á lið. Þátttökulið skipta með sér umsjón leikja (einn dómari frá hverju liði). Gert er ráð fyrir að hver leikur verði í 2x10 mínútur.
Verðlaun á mótinu eru í boði Mótus. Kvenfélag Eiðaþinghár verður með veitingasölu í gamla barnaskólanum á meðan mótinu stendur.
Skráning og nánari upplýsingar eru hjá UÍA í síma 471-1353 eða á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..