Keppni hafin í Bólholtsbikarnum
Bólholtsbikarinn, utandeildarkeppni í körfubolta fer af stað í fimmta sinn í nú í vikunni. Fjögur lið eru skráð til leiks Fjarðabyggð, Unglingaflokkur Hattar, Sérdeildin og Egilsstaðanautin.
Eins og undanfarin ár verða leiknar 10 umferðir og keppninni lýkur á úrslitahátíð um miðjan mars.
Unglingaflokkur Hattar er ríkjandi meistari keppninnar og má sjá þá hér á myndinni kampakáta með sigurlaunin, síðastliðið vor.
Hægt verður að fylgjast með framvindu keppninnar á facebooksíðu keppninnar Bólholtsbikarinn.