Risatjaldið komið upp

Risatjald Ungmennafélags Íslands er risið við sundlaugina á Egilsstöðum. Þar mun það standa fram yfir verslunarmannahelgi.

Tjaldið hýsir allar kvöldvökur mótsins þar sem á stokk stíga gestir eins og Jón Jónsson, Bjartmar Guðlaugsson og Ingó og Veðurguðirnir.

Á daginn verða þar haldnir markaðir þar sem heimaaðilar selja vörur sínar.

Víða um bæinn eru risin lítil sölutjöld. Í þeim verða nokkur aðildarfélög UÍA með sölu á mat og drykk.

 

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ