Skreytingar á Fljótsdalshéraði
Við hvetjum alla til að skreyta bæinn til að kynda undir landsmótsstemmingunni. Bæjarbúar hafa löngum klætt bæinn í ýmsa liti fyrir héraðshátíðina Ormsteiti sem hefst eftir hálfan mánuð.
Íbúar í Koltröð hafa til dæmis tekið sig saman og ætla að breyta götunni í Hattargötu. Þar verða Hattarfánar og aðrar skreytingar við hvert hús. Davíð Sigurðarson, formaður Hattar, er einmitt búsettur í götunni en hann er jafnframt gjaldkeri undirbúningsnefndar Unglingalandsmótsins.