Æfingahelgi í frjálsum íþróttum á Egilsstöðum
Þráinn Hafsteinsson og Þórdís Gísladóttir fjálsíþróttaþjálfarar hjá ÍR ætla að heimsækja Egilsstaði um helgina og vera með æfingahelgi fyrir frjálsíþróttaiðkendur 13 ára og eldri.
Þráinn og Þórdís eru meðal fremstu frjálsíþróttaþjáflara á landinu og hafa unnið mikið uppbyggingarstarf í frjálsíþróttadeild ÍR sem er langstærsta frjálsíþróttadeild landsins. UÍA hefur verið í samstarfi við ÍR undanfarin misseri með afar góðum árangri og það er bæði dýrmætt og lærdómsríkt fyrir frjálsíþróttafólkið okkar að búa að slíku.
Æfingabúðirnar eru sem fyrr segir opnar öllum frjálsíþróttakrökkum og unglingum 13 ára og eldri, áhugasamir þjálfarar og/eða íþróttakennarar eru einnig velkomnir að koma að fylgjast með og læra.
Dagskrá æfingahelgarinnar er eftirfarandi:
Föstudagur 9. maí.
Æfing á Vilhjálmsvelli kl 16:30- 18:00. Allir að mæta vel klæddir!
Skellum okkur svo í pottinn á eftir, allir fara síðan heim að borða.
Laugardagur 10. maí
Æfing á Vilhjálmsvelli kl 11:30-13.00. Allir að mæta vel klæddir!
Nestitími, fyrirlestur og spjall kl 13:00-14:20
Æfing íþróttahúsinu á Egilsstöðum kl 14:30-16:30
Sund eftir æfingu og svo fer hópurinn saman í pizzu í Söluskálann.
Sunnudagur 11. maí
Æfing á Vilhjálmsvelli eða í Fellahúsinu (eftir veðri) kl 10:00-12:00
Spjall og fræðsla frá Þráni og Þórdís til kl 13:00
Þátttökugjald er 4500 kr og innifalið í því eru allar æfingar og fyrirlestrar auk pizzuveislu á laugardagskvöld. Skráning fer fram í netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Það hefur ekki farið framhjá neinum að vetur konungur ætlar illa að sleppa takinu af Austurlandi. Vilhjálmsvöllur er til að mynda undir snjó eins og staðan er í dag, en þar mun hluti æfinganna fara fram. Frjálsíþróttafólk, foreldrar og aðrir velunnarar ætla því að hittast kl 17:30 á fimmtudag og moka af atrennubrautum á vellinum. Allir velkomnir, grípið með ykkur snjóskóflu og góða skapið, margar hendur vinna létt verk!