Fimm frá UÍA á landsmóti 50+
Fimm keppendur UÍA tóku þátt í landsmóti eldri ungmennafélaga sem haldið var í fyrsta sinn á Hvammstanga um Jónsmessuhelgina.
Keppendurnir kepptu í pútti, bridds, frjálsíþróttum, boccia og jurtagreiningu og skiluðu nokkrum verðlaunum í hús.
Þeir voru Brynjólfur Björnsson, Jón Halldór Guðmundsson, Óli Grétar Metúsalemsson, Skúli M. Óskarsson og Vigfús Ingvar Ingvarsson.
Eftir því sem næst verður komist voru bæði keppendur og mótshaldarar ánægðir með þetta fyrsta mót.