Skráning í Launaflsbikarinn 2011
Keppni í bikarkeppni UÍA og Launafls í knattspyrnu hefst sunnudaginn 12. júní. Skráningarfrestur er til 6. júní.Þriðjudaginn 7. júní verður fundur með forráðamönnum félaga þar sem staðfestar verða reglur og fyrirkomulag keppninnar í ár. Skráningum ber að skila inn á meðfylgjandi eyðublaði. Þátttökugjald er 25.000 krónur á lið. Nánari upplýsingar veitir skrifstofa UÍA á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða í síma 471-1353.
Skráningareyðublað.
Reglur keppninnar 2010.