Uppskeruhátíð hjá Skíðafélaginu í Stafdal
Skíðafélagið í Stafdal er komið í sumarfrí. Vetrinum lauk með góðri ferð á Andrésar Andarleikana á Akureyri og að lokum uppskeruhátíð á Seyðisfirði.
Uppskeruhátíð SKIS var haldin á Seyðisfirði í blíðskaparveðri þann 15. maí. Vel var mætt og skemmtu krakkarnir sér vel í leiktækjunum á leikskólanum og í leikjum á túninu utan við leikskólann.
Allir í krílaskólanum og yngsta iðkenndahóp fengu viðurkenningarpening fyrir veturinn, enda stóðu krakkarnir í þessum hópum sig með stakri prýði í allan vetur og voru framfarir mjög miklar hjá öllum.
Í eldri hópum voru veittar viðurkenningar fyrir góðan árangur í vetur:
Besta ástundun 8-10 ára Embla Rán Baldursdóttir
Mestu framfarir 8-10 ára Bjartmar Pálmi Björgvinsson
Efnilegust 8-10 ára Elísa Maren Ragnarsdóttir
Besta ástundun 11 ára og eldri Fjölnir Þrastarson
Mestu framfarir 11 ára og eldri Eggert Már Eggertsson
Efnilegastur 11 ára og eldri Aron Steinn Halldórsson
Gullhjálmurinn - skíðamaður ársins 2011 Eiríkur Elísson
Á myndunum hér til hliðar má sjá iðkendur í eldri hópi með viðurkenningarnar sínar og á þeirri neðri iðkendur í yngri hópi.