Myndbrot: Æsispennandi lokamínútur í Bólholtsbikarnum
Sérdeildin vann á sunnudag Bólholtsbikarinn í körfuknattleik eftir 54-53 sigur á Ásnum. Lokamínúturnar voru sannarlega spennandi þar sem sigurkarfan kom úr vítaskoti fimm sekúndum fyrir leikslok og liðsmenn Ássins fengu tækifæri til að jafna sem þeir nýttu ekki. Í leiknum um bronsið vann Austri 10. flokk Hattar með tuttugu stiga mun. Þar sáust samt glæsitilþrif á lokamínútunum.
Sjá lokamínúturnar úr leik Sérdeildarinnar og Ássins.
Sjá lokamínúturnar úr leik Austra og Tíunda flokks.