Átta splunkunýir körfuknattleiksdómarar komnir í umferð á Austurlandi
Guðni E. Guðmundsson kenndi átta þátttakendum frá fimm aðildarfélögum UÍA undirstöðurnar í körfuboltadómgæslu síðastliðinn laugardag. Hjá UÍA í vetur hefur verið haldið úti utandeild í körfubolta, Bólholtsbikarnum en úrslitakeppni hans verður leikinn 22. maí.
Þar hafa menn rekið sig á að fáir körfuboltadómarar eru á svæðinu og námskeiðið verður vonandi til að efla þá keppni næsta vetur.
Hér á myndinni má sjá Guðna ásamt hinum nýju dómurum.