Verkefnastjóri ULM komin á fullt
Ungmennafélag Íslands réði nýverið Heiði Vigfúsdóttur sem verkefnastjóri 14. ULM og er hún nú komin á fullt við undirbúning mótsins enda í mörg horn að líta.
Heiður sem er rúmlega þrítug er menntaður viðskiptafræðingur hún er búsett á Egilsstöðum ásamt fjölskyldu sinni. Heiður var virk í íþróttum sem barn og kynntist ungmennafélagsandanum vel þegar hún keppti og æfði með HSÞ. Heiður er með vinnuaðstöðu á skrifstofu UÍA og hefur netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og símann 6152265.