Íþróttafélagið Örvar fær góða gesti frá Færeyjum
Nú standa yfir Vinabæjarleikar í boccia í íþróttahúsinu í Fellabæ, þar mæta keppendur Íþróttafélagsins Örvars, frændum sínum og vinum frá Runavik í Færeyjum.
62 manna hópur fatlaðra Færeyinga ásamt aðstoðarfólki er nú í heimsókn á Fljótsdalshéraði. Góður andi ríkti á leikunum og glatt á hjalla. Að leikunum loknum verður fagnaðar í Hlymsölum þar sem syngja á saman og gæða sér á veitingum.