Umsóknarfrestur í Sprett rennur út 4. maí
Nú streyma inn umsóknir í Sprett afrekssjóð UÍA og Alcoa en umsóknarfrestur er til og með 4. maí svo enn er tækifæri til að sækja um.
Úr sjóðnum er úthlutað fjórum gerðum styrkja; afreksstyrkir, iðkendastyrkir, þjálfarastyrkir og félagsstyrkir. Nánari upplýsingar um úthlutunarreglur og umsóknareyðublöð má finna hér á síðunni undir SPRETTUR Afrekssjóður.