Ljóða- og myndlistasamkeppnir UÍA
Í tilefni af 70 ára afmæli Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands, UÍA hefur verið ákveðið að efna til myndlistarsamkeppni milli grunnskólabarna í 1.-4. bekk og ljóðasamkeppni fyrir nemendur í 5.-10. bekk í skólum á Austurlandi.
Hér fyrir neðan má finna frekari upplýsingar um keppnirnar og vonumst við til að sem flestir taki þátt.
Myndlistarkeppni UÍA
UÍA nýtur fulltingis myndlistarfólks víðsvegar að af Austurlandi sem skipar 5 manna dómnefnd.
Keppnin er opin öllum nemendum í 1.-4. bekk í grunnskólum á Austurlandi. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú bestu verk í tveimur flokkum þ.e. 1.-2. bekk og 3.-4. bekk. Að auki verða verðlaunaverkin birt í sérstakri afmælisútgáfu Snæfells sem kemur út nú í sumar.
Þema keppninnar ber yfirskriftina Íþróttir og ungmennastarf á Austurlandi og er ætlað að endurspegla starfsemi UÍA, en undir hana fellur hverskonar íþróttastarf, hreyfing, heilbrigt líferni og listir á okkar fallega Austurlandi.
Verkin skulu unnin í stærð A3, en aðferð og tækni eru algjörlega frjáls. Við mat á verkunum verður tekið tillit til frumleika og stíls.
Höfundar skulu skila verkum undir dulnefni og tilgreina bekk sinn. Senda skal með verkinu, í lokuðu umslagi eða á samanbrotnu blaði, upplýsingar um rétt nafn höfundar og skóla.
Myndum ber að skila til skrifstofu UÍA, Tjarnarási 6, 700 Egilsstöðum í síðasta lagi 20. maí næstkomandi. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu UÍA í síma 4711353, eða This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða hjá Önnu Bjarnadóttur formanni dómnefndar í netfanginu This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..
Ljóðasamkeppni UÍA
UÍA nýtur aðstoðar meðlima í ljóðaklúbbnum Hása kisa við framkvæmd keppninnar í ár og munu þeir skipa dómnefnd. Keppnin er opin öllum nemendum í 5.-10. bekk í grunnskólum á Austurlandi. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú bestu ljóðin í eftirfarandi flokkum; 5-6. bekkur, 7.-8. bekkur og 9.-10. bekkur. Bjartur bókaforlag gefur verðlaun í keppnina en auk þess verða verðlaunaljóðin birt í sérstakri afmælisútgáfu Snæfells sem kemur út í sumar.
Engin skilyrði eru sett um efnistök eða form ljóðanna. Við mat verður tekið tillit til frumleika, stíls, tilfinningar og notkunar tungumálsins.
Ljóðum ber að skila til skrifstofu UÍA, Tjarnarási 6, 700 Egilsstöðum eða á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. í síðasta lagi miðvikudaginn 10. maí. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofunni í síma 4711353 eða hjá Stefáni Bogi Sveinssyni í síma 6945211.