10. flokkur Hattar á ferð og flugi
Spennandi viðureignir eru framundan í Íslandsmóti yngri flokka í körfuknattleik, nú um helgina í Laugardalshöllinni. Þar leika nýkringdir bikarmeistarar okkar í 10. flokki Hattar til undanúrslita á móti KR á morgunn.
Fari okkar menn með sigur af hólmi leika þeir til úrslita, geng sigurvegara úr leik Stjörnunnar og Njarðvíkur, á sunnudag. Hattarliðið er þekkt fyrir fádæma baráttu og leikgleði sem mun án efa nýtast þeim vel um helgina. Því fer fjarri að afslöppun og huggulegheit séu á dagskrá liðsins að loknu Íslandsmótinu, því strax á þriðjudag liggur leið þess til Danmerkur þar sem þeir leika á stóru alþjóðlegu körfuboltamóti.
Óskum við stákunum góðs gengis. ÁFRAM HÖTTUR.