Baráttan um Íslandsmeistaratitilinn heldur áfram

Annar leikur úrslitarimmunar um Íslandsmeistaratitilinn í blaki kvenna fór fram í Kópavogi í gærkvöldi. Þar lutu Þróttarstúlkur í lægra haldi fyrir HK 3:2.

HK sigraði fyrstu hrinu naumlega 25:20 en þá næstu af meira öryggi  25:12, okkar stelpur komu þá sterkar inn og sigrðuð þriðju hrinu 16:25 og þá fjórðu 13:25. Oddahrinan varð þó aldrei sérlega spennandi því hana sigraði HK 15:7.

Þróttur mætir því HK í hreinum úrslitaleik í Neskaupstað 16. apríl kl 14. Allir á völlinn og hvetjum okkar stelpur til sigurs.

Hér á vef Morgunblaðsins má sjá viðtal við Kristinu Apostolovu sem tekið var eftir leikinn.

 

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ