Helgi lætur af stöfum í stjórn ÍSÍ
Helgi Sigurðsson sem hefur undanfarin tvö ár setið, sem fulltrúi UÍA, í stjórn ÍSÍ lét af störfum á Íþróttaþingi ÍSÍ síðastliðna helgi.
Af því tilefni færðu Ólafur Rafnsson forseti ÍSÍ og Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ honum þakkir fyrir mikilvægt framlag sitt til íþróttahreyfingarinnar. Það gerum við hjá UÍA einnig, enda hefur Helgi haldið merkjum UÍA á lofti í hvívetna og verið öflugur fulltrúi Austurlands innan landssamtakanna.