Glæsilegur sigur í gærkvöldi
Þróttur sigraði HK 3:1, í fyrstu viðureign liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í blaki kvenna sem fór fram í Neskaupstað í gærkvöldi.
HK sigraði fyrstu hrinu leiksins, 25:15, en eftir það snéru okkar stúlkur vörn í sókn og sigrðuðu þrjár næstu hrinur, allar með sama mun, 25:22.
Frábært stemning var á leiknum og íþróttahúsið sneisafullt af stuðningsmönnum Þróttar sem létu vel í sér heyra.
Þróttur getur því tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn annað kvöld þegar liðin mætast, öðru sinni, í Kópavogi.