Úrslitarimman hefst í kvöld
Fyrsti leikurinn, milli Þróttar og HK, í úrslitarimmunni um Íslandsmeistaratitilinn í blaki kvenna fer fram í kvöld.
Leikurinn hefst kl 19.30 á hinum firnasterka heimavelli Þróttar á Neskaupsstað. Við hvetjum að sjálfsögðu alla til að mæta á áhorfendapallana og láta duglega í sér heyra.
ÁFRAM ÞRÓTTUR.