Þróttur Nes mæti KA í kvöld
Undanúrslitaleikur um Íslandsmeistaratitilinn í blaki kvenna fer fram á Neskaupstað í kvöld og hefst kl 19.30. Þar mun hið sigursæla lið Þróttar mæta KA konum.
Liðin mætast svo aftur þann 7. apríl kl 19.30 í KA heimilinu á Akureyri og liðið sem verður fyrra til að sigra tvo leiki spilar í sjálfum úrslitaleiknum. Komi til þriðja leikjarins milli okkar kvenna og KA verður hann spilaður á Neskaupstað þann 9. apríl kl 14. Eins og flestir vita hafa Þrótturstúlkur nú þegar unnið deildar- og bikarmeistaratitla vetrarins og alveg ljóst að þær stefna á að bæta Íslandsmeistaratitli í safnið. Óskum við þeim góðs gengis í leiknum í kvöld og hvetjum alla til að mæta á áhorfendapallana og styðja okkar stelpur til sigurs.