Glæsileg bronsglíma

Ásmundur Hálfdán Ásmundsson, UÍA, vann á laugardag til bronsverðlauna í Íslandsglímunni sem fram fór á Reyðarifirði. Ásmundur, sem er 17 ára gamall, lagði Jón Smára Eyþórsson í úrslitaglímu um þriðja sætið.

Hægt er að horfa á myndband af glímunni hérna á vefnum.

Í kvennaflokki náði Ragna Jara Rúnarsdóttir einnig bronsverðlaunum en hún glímdi til úrslita um 2. - 4. sætið. Ásmundur Hálfdán og Ragna Jara eru eftir því sem næst verður komist fyrsta UÍA fólkið til að komast á verðlaunapall í Íslandsglímunni.

 

 

 

Staðsetning og opnunartími

Skrifstofa UÍA er staðsett að Tjarnarási 6 á Egilsstöðum gegnt Flytjanda.

Almennur opnunartími skrifstofu er frá kl. 9:00-15:00 alla virka daga.

Framkvæmdastjóri er Gunnar Gunnarsson.
Netfang: uia@uia.is og sími 471-1353.

Kennitala UÍA er: 660269-4369.

Landssambönd

ÍSÍ
UMFÍ