Ljóðasamkeppni UÍA endurvakin
Í tilefni af 70 ára afmæli UÍA hefur verið ákveðið að endurvekja ljóðasamkeppni UÍA sem haldin var um nokkurra ára skeið og margir muna eflaust eftir. UÍA nýtur aðstoðar meðlima í ljóðaklúbbnum Hása kisa við framkvæmd keppninnar í ár og munu þeir skipa dómnefnd. Keppnin er opin öllum nemendum í 5.-10. bekk í grunnskólum á Austurlandi. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú bestu ljóðin í eftirfarandi flokkum; 5-6. bekkur, 7.-8. bekkur og 9.-10. bekkur. Bjartur bókaforlag gefur verðlaun í keppnina en auk þess verða verðlaunaljóðin birt í sérstakri afmælisútgáfu Snæfells sem kemur út í sumar.
Engin skilyrði eru sett um efnistök eða form ljóðanna. Við mat verður tekið tillit til frumleika, stíls, tilfinningar og notkunar tungumálsins.
Ljóðum ber að skila til skrifstofu UÍA, Tjarnarási 6, 700 Egilsstöðum eða á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. í síðasta lagi föstudaginn 29. apríl. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofunni í síma 4711353 eða hjá Stefáni Bogi Sveinssyni í síma 6945211.