Þróttur deildarmeistari í blaki
Þróttur Neskaupstað tryggði sér í dag annan titilinn í blaki kvenna á innan við viku þegar liðið varð deildarmeistari. Aftur voru andstæðingarnir HK og aftur réðust úrslitin í oddahrinu.
HK vann fyrstu hrinuna 25-19 en Þróttur svaraði með að vinna næstu tvær, báðar 18-25. HK knúðu fram oddahrinu með að vinna fjórðu hrinuna örugglega 25-16. Útlitið var ekki bjart hjá Þrótti um miðja hrinuna þegar HK var yfir 8-3. Norðfjarðarliðið sýndi á klærnar og snéri leiknum sér í vil og vann hrinuna 13-14.
Með sigrinum í dag tryggði Þróttur sér heimaleikjaréttinn í úrslitakeppninni í apríl. Í undanúrslitum leikur liðið gegn KA.