Gull og silfur austur
Um síðustu helgi tóku þrír glímukappar frá UÍA þátt í lokaumferð Meistaramóts Íslands í glímu sem fram fór á Ísafirði og röðu þeir sér þar í efstu sætin í unglingaflokki.
Ásmundur Hálfdán Ásmundsson UÍA sigraði í 80+ flokki unglinga eftir harða keppni við Hjalta Þórarinn Ásmundsson UÍA sem hafnaði í öðru sæti og Bjarna Þór Gunnarsson Mývetning sem varð þriðji. Eftir fyrstu umferð voru þeir allir jafnir með þrjá vinninga. Í 80- flokki unglinga náði Hjörtur Elí Steindórsson UÍA öðru sæti eftir snarpar viðureignir við félaga sína úr Herði á Ísafirði. Ásmundur og Hjalti tóku einnig þátt í opnum flokki karla og höfnuðu þar í 4. og 7. sæti. Við getum svo sannarlega verið stolt af glímuköppunum okkar og óskum þeim hjartanlega til hamingju með árangurinn.