Skráning sjálfboðaliða í fullum gangi
Skráning þeirra sem vilja hjálpa til við Unglingalandsmótið um verslunarmannahelgina er nú í fullum gangi.
Skráð er á vefnum ulm.is. Þörf er á fjölda sjálfboðaliða til að mótið gangi sem best enda næg verk í boði. Sjálfboðaliðarnir geta skráð sig fyrir hönd ákveðins aðildarfélags UÍA sem hagnast þá á vinnuframlaginu. Þeir geta einnig valið við hvaða verkþátt eða íþróttagrein þeir vilja helst vinna og hvenær.
Að auki safna sérgreinastjórar liði en þeir bera í raun ábyrgð á mönnun sinna greina.
Nánari upplýsingar eru á ulm.is eða hjá This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða í síma 471-1353.