Kvennatölt Blæs
Kvennatölt var haldið laugardaginn 5. mars í nýbyggðri reiðhöll hestamannafélagsins Blæs á Norðfirði, en það er fyrsta mótið sem haldið er í húsinu.
Það voru Blæsfélagarnir Steinar Gunnarsson og Guðbjartur Hjálmarsson sem áttu veg og vanda af þessu frábæra móti. Fengu þeir til liðs við sig ýmsa góða menn og konur við mótshaldið og má sannarlega segja að vel hafi tekist til.
Keppt var í tveimur flokkum á mótinu. Í flokki 15 ára og yngri voru fjórar efnilegar stúlkur en í eldri flokki voru rúmlega þrjátíu skráningar frá föngulegum konum víðsvegar af Austurlandi.
Riðin voru A - og B úrslit í eldri flokki og gekk öll keppnin vel og snurðulaust.
Glæsileg verðlaun voru í boði, bæði medalíur fyrir fimm efstu sætin og mjög fallegur farandgripur fyrir efsta sæti í eldri flokki, en verðlaunin á mótinu voru gefin af feðgunum Gunnari Jónssyni og Steinari Gunnarsyni og fjölskyldu þeirra í minningu Halldóru Jónsdóttur.
Einnig voru veitt 50.000 kr peningaverðlaun fyrir fyrsta sætið í eldri flokki þannig að til mikils var að vinna.
Úrslitin á mótinu voru sem hér segir:
Yngri flokkur
1. sæti Þuríður Lillý Sigurðardóttir og Bessi frá Björgum
2. sæti Andrea Guðbjartsdóttir og Kristall frá Naustum
3. sæti Sigríður Theodóra Sigurðardóttir og Sproti frá Bárðartjörn
4. sæti Elísabet Líf Theodórsdóttir og Saga frá Flögu
Eldri flokkur
1. sæti Nikólína Rúnarsdóttir og Þytur frá Kollaleiru
2. sæti Guðbjörg Friðjónsdóttir og Ófeigur frá Ey II
3. sæti Guðrún Ásdís Eysteinsdóttir og Dalvar frá Tjarnarlandi
4. sæti Elísabet Ýrr Steinarsdóttir og Svala frá Syðstu-Grund
5. sæti Helga Valbjörnsdóttir og Gusa frá Breiðabliki
Dómari mótsins var Þorvarður Ingimarsson frá Eyrarlandi, ritari Hjálmar Einarsson og þulir Jóna Árný Þórðardóttir og Ingólfur Arnarson.
Mótshaldarar þakka þátttakendum, starfsfólki og áhorefndum fyrir skemmtilegt mót en reikna má með að kvennatölt Blæs verði árlegur viðburður hér eftir þar sem keppt verður um farandgripinn góða í minningu hestakonunnar Halldóru.