UÍA fánar í öll íþróttahús
Á 61. Sambandsþingi UÍA afhenti Hildur Bergsdóttir framkvæmdastjóri UÍA fána sem geymdir verða í öllum íþróttahúsum á Austurlandi.
Geta aðildarfélög á hverjum stað fyrir sig nálgast fána í íþróttahúsinu sínu og dregið að húni á viðburðum og mótum á vegum félaganna. Með þessu vill UÍA auka sýnileika sinn á svæðinu. Hugmyndin kom frá Jóni Birni Hákonarsyni formanni UMF Egils rauða og þökkum við honum fyrir hugmyndauðgina.