Sambandsþing UÍA 5. mars
61. Sambandsþing UÍA fer fram í Grunnskólanum á Eskifirði laugardaginn 5. mars og hefst kl 11. Þar verða hefðbundin þingstörf og væntanlega líflegar umræður um starfsemi sambandsins. UÍA heiðrar þar íþróttamann ársins 2010 og veitir starfsmerki. Auk þess sækja fulltrúar frá UMFÍ og ÎSÍ okkur heim og veita viðurkenningar.