Íþróttamaður Hugins valinn
Íþróttafélagið Huginn á Seyðisfirði útnefndi nýverið Jónu Ólafsdóttur íþróttamann Hugins árið 2010.
Jóna er góð fyrirmynd fyrir yngri iðkendur knattspyrnu og hefur verið ötul í þjálfarastarfi yngri flokka ásamt því að vera framúrskarandi knattspyrnukona, og er hún nú samningsbundin hjá Meistaraflokki Fram. Jóna, sem og aðrir íþróttamenn Hugins, fékk til varðveislu verðlaunagrip sem gefinn var af hjónunum Dóru Gunnarsdóttur og Guðmundi Hallgrímssyni til minningar um Jón Pálsson skipstjóra.
Óskum við Jónu hjartanlega til hamingju með viðurkenninguna.