Skemmtileg ístöltkeppni að baki
Hestamannafélagið stóð að framkvæmd Ístölt Austurlands sem fór fram á Môavatni við Tjarnarland laugardaginn 26. febrúar og var hið skemmtilegasta.
Var þar gnótt fallegra hrossa og knárra knapa á öllum aldri en keppt var í flokkum unglinga, áhugamanna, opnum flokki, A og B flokkum. Úrslit mótsins má finna hér á heimasíðu Freyfaxa. Fleiri myndir af mótinu munu birtast hér á síðunni fljótlega. Á myndinni hér til hliðar má sjá Snorra Guðröðarson á Gol frá Ásholti en þeir félagar sigrðu í flokki 16 ára og yngri.