Tíundi flokkur Hattar bikarmeistari
Höttur varð í dag bikarmeistari í körfuknattleik í 10. flokki drengja eftir 64-61 sigur á A liði Stjörnunnar í úrslitaleik á Ásvöllum í Hafnarfirði. Þetta er í fyrsta sinn sem aðildarfélag UÍA vinnur landskeppni á vegum Körfuknattleikssambands Íslands.
Liðin skiptust á forustunni en Stjarnan var yfir 31-32 í hálfleik. Góður seinni hálfleikur skilaði bikarnum austur. Eysteinn Bjarni Elvarsson var valinn maður leiksins. Hann skoraði 22 stig og tók nítján fráköst. Þjálfari liðsins er Viðar Örn Hafsteinsson. Þessi hópur myndaði undirstöðuna að liði Hattar sem komst í undanúrslit Íslandsmeistaramótsins í fyrra.
Umfjöllun um leikinn frá Agl.is
Viðtal við þjálfarann á Agl.is
Myndir og umfjöllun frá Karfan.is