UÍA æfing í frjálsum íþróttum
Frjálsíþróttaráð UÍA býður til frjálsíþróttasamæfingar fyrir 11 ára og eldri.
Æfing fer fram í Fjarðahöllinni á laugardaginn 19. febrúar milli kl 10 og 12. Æfingin er þátttakendum að kostnaðarlausu og öllum opin. Hvetjum alla áhugasama til að láta sjá sig.