Fyrstu umferð Bólholtsbikarsins lokið.
Þrjár spennandi viðureignir áttu sér stað í Bólholtsbikarnum nú í vikunni og er fyrstu umferð nú lokið.
Úrslit voru þessi; SE lagði lið Einherja með 24 stigum gegn 16, Sérdeildinn hafði betur gegn Ásnum, með 57 stig gegn 35 og 10. flokkur Hattar sigraði Austra með 54 stigum gegn 49. Önnur umferð hefst eftir helgi en þá mætast SE og Ásinn á Brúarási á miðvikudagskvöld og sama kvöld leikur Einherji gegn Austra í íþróttahúsinu á Eskifirði. Á fimmtudagskvöldið eigast 10. flokkur og Sérdeildin við í íþróttahúsinu á Egilsstöðum.