Líf og fjör á Meistaramóti UÍA
Meistaramót UÍA í frjálsum íþróttum fyrir 10 ára og yngri fór fram laugardaginn 5. febrúar í íþróttahúsinu á Fáskrúðsfirði.
Þar mættu til leiks um 35 krakkar frá fimm félögum og spreyttu sig í langstökki án atrennu, spretthlaupi, boltakasti og þrautabraut. Framkvæmd mótsins gekk afar vel enda nóg af vinnufúsum höndum í hópi foreldra. Á mótinu sveif hinn sanni ungmennafélagsandi yfir vötnum og árangur ekki síður mældur í brosum en sekúntum og sentimetrum. Allir fengu viðurkenningarpening fyrir frammistöðu sína og tóku börnin stolt og sæl á svip við þeim.
Þökkum við keppendum og starfsfólki á Meistaramótinu kærlega fyrir skemmtilegan dag.